Stærð: 5,5cm í þvermál og h: 6,7cm
Brennslutími: 12klst
Meraki kerti eru ólík flestum ilmkertum, en þau eru framleidd úr soyabaunaolíu. Þau innihalda 96% soyaolíu og og 4% ilmefni. Þetta veldur því að minna sót fellur á veggi, húsgögn og gluggatjöld en af venjulegum kertum. Auk þess er auðvelt að hreinsa vax sem lekið hefur niður, með volgu vatni.
Fyrsta brennsla skiptir öllu máli. Passa þarf að vaxið sé orðið fljótandi á yfirborðinu svo að ilmkertið nýtist sem best.