Stærð: h: 55cm, b: 50cm
Efni: leir
Þyngd: 36kg
Hver og einn einstakur, enginn litur er nákvæmlega eins.
Er með gati í botninn. Má vera úti en minnum á að ekki er hægt að tryggja að blómapottur sé frostþolinn fyrir íslenskt veðurfar.
Til að reyna að lengja líftímann á blómapottinum mælum við með að setja slatta af vikri í botninn (ef umpottað er ofaní pottinn) og setja viðarplötu eða eitthvað undir blómapottinn fyrir veturinn svo vatnið nær að leka betur. Svo er líka mjög gott að hafa hann í skjóli. Ef mikill snjór leggst á hann lengi er meiri líkur á að hann springi.
Myndband á Instagraminu okkar fyrir betri útskýringu eða hringja í okkur <3